Hverfisgata 31

Hverfisgata 31

Hverfisgata 31

Hverfisgata 31, byggt 1919. Þarna bjó Bjarni Gíslason. Bjarni var með fiskverkun og kindabúskap. Hann var með aðstöðu við Lækinn nærri Reykdalsstíflunni og voru kindahúsin ofan við hús Jóns Mathiesens. Man ég vel eftir Bjarna arkandi með stórar hjólbörur nærri Hörðuvöllunum. Eins átti hann tvo forna vörubíla sem hann ók stundum. Jón Bjarnason sonur hans var um skeið með rafmagnsverkstæði á jarðhæðinni.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *